Lífið í Mávahlíðinni:)

Sara

25.10.2006 10:53:08 / sara87

KOMIN MEÐ NÝJA SÍÐU:)

ÆTLA AÐ PRÓFA BLOGGAR.IS :lol: Endilega kíkið á www.sara87.bloggar.is 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 09:35:57 / sara87

þreytt og úldin....

Jæja kominn tími fyrir nokkrar línur.....

Ég vaknaði í morgun alveg drullu þreytt og úldin og var engan veginn að nenna í skólann... En það þýðir víst ekkert kæruleysi þannig að ég reif mig á fætur, tók mig til og rölti svo niður í skóla....

Það var ís kallt.... allavega of kallt fyrir nývaknað fólk. Og ég sem á enga almennilega vetlinga var að frosna á höndunum:$ Maður verður að fara að kaupa sér vetlinga;)

Þegar ég kom inn í sögutíma voru kynningar á bókahöfundum.... erum hver með sína bók sem við eigum að lesa og eigum að gera alls konar verkefni úr henni og þetta var bara eitt af þeim.... áttum semsagt að kynna höfundinn;) Það var nú svolítið mikið að gera hjá mér í gær þannig að ég náði engan veginn að koma þessu verkefni fyrir nema ég hefði bara vakað í alla nótt... En það er auðvitað ekkert sniðugt.

En það er kostur að vera í seinnihlutanum í stafrófinu....:haha: Á meðan þeir sem voru á undan mér í stafrófinu lásu upp kynningarnar sínar setti ég saman þessa líka glæsilegu kynningu á Önnu Frank og las hana svo upp í lok tímans þannig að þetta virkaði allt eins og ég hefði lært heima og kennarinn svona líka ánægður með þetta;)

Það var mikið að gera hjá´mér í gær.... Ég var búin í skólanum kl 15:15 og þá fór ég beinustu leið heim fékk mér að borða, lærði smá undir stærðfræðipróf sem ég er að fara í í dag og rölti svo út á Grensás í vinnuna....:haha: Þetta var´fínn vinnudagur..... ég var að vinna með Marlenu og það var bara rosa fínt:haha:

Það er alltaf svo nice hvað dagarnir eru fljótir að líða þarna í vinnunni....:haha: Alltaf nóg að gera og maður lendir aldrei í því að þurfa að hanga eitthvað og gera ekki neitt... Alltaf eitthvað til að grípa í ef það er lítið að gera....8)

Þegar vinnan var búinn rölti ég svo aftur heim, fékk mér að borða og fór svo bara fljótlega að sofa.....

Ég er búin að læra alltof lítið fyrir þetta stærðfræðipróf, sem er engann veginn gott því mér gekk illa í seinasta stærðfræðiprófi:$ En ég verð að fara að taka mig á ætla ekki að falla í þessum áfanga!

Svo er það uppskeruhátíðin um helgina.... :haha: get ekki beðið eftir því að komast heim á æfingu.... er alveg að deyja úr hreyfingaleysi! Þetta verður að fara að breytast! Svo auðvitað verður líka bara gaman að hitta allar stelpurnar og bara ALLA:haha:

Í dag ætla ég svo bara að reyna að slappa af.... fór svo seint að sofa í gær að ég er að drepast úr þreytu núna:$ En ég er búin snemma í skólanum, ætla þá að reyna að fara í ljós og svo bara fara heim og hafa það cosy8)

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra!

Hlakka til að sjá ykkur um helgina:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 10:17:22 / sara87

Róleg helgi....

Halló Halló:haha:

Þá er enn ein vikan byrjuð og ég komin aftur í borgina....

Helgin var nice....:haha: Örn kom heim á föstudaginn:haha: og við vorum bara róleg heima á dósinni og kíktum á Braga, Söndru og Lindu Fanney litlu á föstudaginn og váá hvað hún er lítil og falleg:D Algjört æði:D

Á laugardaginn var svo bara legið í leti upp í sveit enda algjört letiveður, rigning og rok  :S En um kvöldið var svo þotið niður á Blönduós þar sem fullt af fólki var að djamma og ég einmitt að keyra eins og oft áður.... Núna er samt eittthvað nýtt hjá Árbakkanum að hafa opið fyrir 20 ára og eldri... er nú ekkert alveg sátt við það... ekki svona þegar maður á afmæli í desember og þá rétt að verða 19 ára....:$  Ætla rétt að vona að þetta verði ekki svona núna um helgina því þá er uppskeruhátíðin hjá Hvöt og það er auðvitað alltaf djamm eftir hana:haha:

Á Sunnudeginum var svo vaknað snemma og farið upp í Öxl og hjálpað til að smala og vorum svo þar restina af deginum þangað til ég þurfti að leggja af stað suður aftur.... :$

Núna er Örn að vinna rétt hjá Akureyri.... Þannig að ég hitti hann ekkert fyrr en á fimmtudaginn þegar hann kemur í bæinn til mín:haha: En það er nú ekkert svo langt þangað til;)

Hjalli og Ester voru svo yndisleg að bjóða mér í mat í gærkvöldi....:haha: Hjalli kom og náði í mig eftir vinnu og við fórum heim til Ester þar sem hjalli eldaði þetta rosalega góða pulsupasta... Ekkert smá gott sko;) "Takk fyrir mig dúllurnar mínar;)" Þegar við vorum búin að borða þurfti Hjalli að fara að gera við bílinn sinn og fara á fótboltaæfingu þannig að hann skutlaði mér og Ester heim í Mávahlíðina þar sem við fórum keyptum okkur nammi og fórum að læra:haha: Svo kom Sandra heim, eftir að hafa verið í mat hjá ömmu sinni og afa og lærði með okkur:haha: Þetta var ótrúlega fínt kvöld:haha:

Í dag er ég svo bara að fara að vinna frá 18-23:30 eða eitthvað þannig.... Ég verð að tala við yfirmanninn minn í dag um að ég þurfi að fara á sjúkrahús brjáðlega útaf bakinu hjá mér, þannig að ég er bara stressuð:S

En núna nenni ég ekki að hafa þetta lengra...

Hafiði það gott;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 17:29:26 / sara87

Þarf að fara á stykkishólm í 2-3 vikur :(

Hæhæ:lol:

Jæja þá er loksins kominn föstudagur... og ég búin að fara á stykkishólm til læknis....

Þetta er ótrúlega góður læknir... og hann vill að ég komi og verði þarna á sjúkrahúsinu í 2 til 3 vikur til að vinna í bakinu á mér.... Hljómar nú ekkert svakalega spennandi:S En ef það er hægt að gera eitthvað svo bakið á mér allavega skáni þá er það bara gott mál:haha: Þannig að núna þarf ég bara að finna tíma og fara að drífa í þessu... verð bara að fá að taka skólann í gegnum fjarnám á meðan....

Núna er Örn á leiðinni heim þannig að ég býð bara spennt heima;):haha:

Um næstu helgi er svo uppskeruhátíðin! Ég var skráð á vakt í vinnunni þá en er að reyna að gera allt til að breyta því svo ég geti komið heim á æfingahelgi og auðvitað tekið uppskeruhátíðardjamm með liðinu;) Væri bara sárt að missa af þessu!

Svo þarf ég bara að fara að finna eitthvað lið til að æfa með í borginni.... alveg ömurlegt að vera ekki að æfa fótbolta! Við Sandra vorum nú búnar að fá leyfi til að æfa með ÍR en það er bara svo langt í burtu frá okkur.....:$

Ætla bara að hafa þetta stutt í dag:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 22:28:53 / sara87

Komin norður:)

Jæja þá er maður kominn heim á dósina og haustfríið byrjað!

Eftir skóla í gær þurfti ég að vinna aukavakt í vinnunni..... Það er alveg ótrúlega fyndið að fylgjast með því hvað fólk er misjafnt.... sumir hafa alveg ótrúlega lítið sjálfsálit á meðan egoið er alveg að drepa aðra....8)

Maður tekur einmitt svolítið eftir þessu á ljósastofunni.... Þar sem sumir kallmennirnir koma þarna inn svífandi úr monti, finnast þeir alveg hrykalega svalir eitthvað og eiga það meira að segja til að labba um allt á nærbuxunum frammi.... Það var einn svakalega góður sem kom þarna inn um daginn, labbaði fram ber að ofan og stóð fyrir framan spegilinn og var að bera á sig eitthvað krem.... Ég átti erfitt með að halda hlátrinum inn í mér:haha: En mér tókst það nú samt:haha:

En þennan sama dag kom annar gaur röltandi inn, glaður og brosandi og spurði mig hvort það væri mikið að gera á þessari ljósastofu.... Ég svona fattaði nú ekki alveg hvað hann væri að meina og sagði bara að það væri frekar rólegt núna eins og væri en oftast væri alveg fullt að gera..... Hann hélt eitthvað áfram að spjalla, fór svo inn í bekkinn og svo þegar hann kom út þá segir hann alveg hrykalega svalur " Hey hvenær ertu að vinna næst?" ég sagði honum það og spurði svo afhverju hann væri að spurja að þessu og þá sagði hann " var bara að spá hvenær ég ætti að koma næst í ljós" Blikkaði mig og labbaði síðan út.....

Hehe... jáhh það er alveg ótrúlegt sumt fólkið í þessari borg....

Eftir vinnu fór ég beinustu leið heim og náði í Söndru, Adda og Munda og við fórum öll saman á leikinn Ísland-Svíþjóð sem var á laugardalsvellinum..... Ég var nú auðvitað svekkt að Ljungberg hafi ekki verið í liðinu en sá samt að kvennalið Arsenal mætti á leikinn;)

Leikurinn var góður þrátt fyrir ömurlega dómgerslu og tap okkar manna...... Ég skil ekki alveg hvað var í gangi hjá þessum dómara og ég held barasta að ég verði að vera sammála Adda og halda því fram að þetta hafi verið Svíi:haha:

Eftir leikinn var svo bara farið heim.... eldað pizzu og haft það cosy!

 Í dag var svo bara brunað norður.... Addi, Sandra og Guðmunda Rós komu með:haha:

Á morgun þarf ég svo að vakna eldsnemma til að fara á stykkishólm til baklæknisins..... Er nú ekkert alveg að nenna að vakna og keyra þangað en maður getur nú sofið í bílnum;) Svo þegar maður kemur heim aftur verður Örn örugglega kominn svo maður ætti ekki að vera að kvarta:haha:

Ætla svo bara að vera hérna fyrir norðan um helgina og hafa það gott :haha: En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili....:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 08:48:40 / sara87

Haustfríið að byrja í dag:)

Þá er kominn miðvikudagur, sem þýðir það að í dag er haustfríið að byrja (frí á morgun og á föstudaginn.):D

Í gær fór ég að vinna kl.18 og var að vinna til kl 24.... Þetta var fínasti vinnudagur... Var að vinna með stelpu sem heitir Marlena og er rosa fín, nóg að gera og allt gekk vel:haha:

Í dag er leikurinn Ísland- Svíþjóð. Addi kemur með rútunni í dag og svo ætlum ég, Sandra, hann og Mundi öll saman á leikinn.... mig var búið að hlakka til að fara á hann og sjá Ljungberg frá því einhverntíman í sumar þegar ég og Sandra sáum að þessi leikur yrði í vetur...... Fyrir þá sem vita ekki hver Ljungberg er þá er það einn af leikmönnum Arsenal. En í gær komst ég svo að því að hann verður ekki með í leiknum vegna meiðsla:( Var ekkert lítið svekkt!

Ég er að pæla í að leggja af stað heim beint eftir leikinn.... En það fer allt eftir því hvernig færðin er.... mér skilst að það sé byrjað að snjóa heima.

Á föstudaginn þarf ég svo að fara á Stykkishólm til baklæknis. En þið hugsið örugglega það sama og hinir og spyrjið Á STYKKISHÓLMI?? En ástæðan fyrir því er að í sumar var mér bent á það að besti baklæknirinn á landinu væri þar og þess vegna er eg á leiðinni þangað.... Vona bara að hann geti hjálpað mér eitthvað... Alveg ömurlegt að vera svona:S

Annars veit ég ekki alveg hvað ég geri restina af helginni... En það kemur nú örugglega í ljós í dag:P

En núna nenni ég engan veginn að hafa þetta lengra.....

See yaa;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 08:33:47 / sara87

ágæt helgi....

Enn ein vikan byrjuð og Örn núna farinn að vinna einhversstaðar hjá Stykkishólmi:$

Ég fór heim um helgina og var nú ekki mikið gert um helgina annað en að ég kíkti aðeins með Hjalla, Ester og Erni fyrir utan ballið sem var í Víðihlíð....:D Það var alveg ótrúlega mikið af fólki þarna og jáhh alskonar fólki:P Það var eiginlega bara gaman að fylgjast með þessu því fólk var svo misjafnlega flott klætt þarna og svo held ég að þeminn hafi verið að labba asnalega....:haha:

Við hittum heilan helling af hressu liði sem við þekktum sem var mjög gaman! Fólk var samt alveg mishresst:D

Svo var bara keyrt heim, okkur hent upp í Öxl í leiðinni.... Við fengum okkur að borða og fórum svo beint að sofa því við þurftum að vakna snemma morguninn eftir....8) Morguninn eftir vöknuðum við svo kl 10 því Örn þurfti að fara að hjálpa til að smala og á meðan var ég heima með Önnu Rakel og mömmu hans...;)

Þegar allir komu svo heim aftur eftir að hafa smalað lögðumst við bara upp í sofa og sofnuðum......

Ég fór svo heim eftir að hafa borðað mig pakk sadda af vöfflum, tók dótið mitt til og svo skutlaði Hjalli mér og Ester aftur upp í Öxl og svo var bara lagt af stað aftur....

Örn keyrði svo aftur til baka í nótt...:$

Í dag veit ég ekkert hvað eg geri..... Ég þarf að læra fyrir enskupróf og svo verður maður örugglega bara heima í leti....;) En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra...

;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 10:02:25 / sara87

Vilko vöfflur og hreyfingarleysi.....

Halló8)

Jæja þá er kominn fimmtudagur sem þýðir að helgina fer bara að skella á. Ég veit ekki alveg hvernig þetta á eftir að verða þar sem ég er á seinni vakt á ljósastofunni á morgun:S Ekki alveg það besta að lenda á svoleiðis vöktum, föstudagana sem maður er í fríi, því þá nær maður ekkert að fara neitt nema svo seint á föst. kvöldi eða á laugardags morgni.

En jamm.... Gærdagurinn var fínn.... Við Sandra vorum bara heima að hafa það gott eftir skóla og Sandra var svo myndaleg að baka vöfflur fyrir okkur:P Hún gleymdi sér smá í bakstrinum og bakaði heilt fjall af svona líka ljúffengum VILKO vöfflum.... Rosalega gott:P Það er ekki spurning hvaða pakkavöfflur eru bestar:haha: 

Eftir að hafa verið heima var skroppið í kringluna, farið í bankann og vesenast eitthvað:haha:

Um kvöldið var svo  farið á leikinn KF. Nörd- FH.... Það var bara selt inn í aðra stúkuna þannig að það var frekar troðið þarna og við fengum bara sæti utan stúkunnar. Hjalli, Addi og Siggi Smári komu alla leið að norðan til að sjá leikinn og svo voru Sverrir, Ester,Mundi, og við;)

Andrea og Þórdís fóru líka en þær komu svo snemma að þær náðu stúku:D

Eftir leikinn fórum við öll saman á KFC sem er mitt uppáhald:P Ég elska kjúklinginn þarna!! Eftir það var svo bara farið heim og Andrea kom í heimsókn til okkar:haha:

Á mánudaginn fer Örn svo að vinna í stykkishólmi:$ Finnst það ekkert sniðugt, Á bara eftir að sakna hans......

Í dag veit ég ekkert hvað ég ætla að gera..... ég þarf auðvitað að klára að læra og svo veit maður aldrei hvað manni dettur í hug að gera....;)

Það er alveg svakalegt hvað hreyfingarleysið hjá manni er orðið mikið... ég er bara komin með samviskubit yfir því hvað ég er búin að vera löt.... Ég verð að fara að gera eitthvað í þessu! Þetta þýðir bara ekki lengur:$

En núna ætla ég að hætta í bili:haha:

Bæbæ8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 14:29:55 / sara87

ÁfRAM KF NÖRD:D

Komiði sæl....:lol:

Þá er helgin búin..... Ég komst því miður ekki heim á fótboltaæfingu vegna þess að ég þurfti að vinna alla helgina á ljósastofunni8) :$

Þetta var samt fínasta helgi......

Á föstudaginn fór ég að vinna beint eftir skóla og vann til klukkan 6. Það fór samt allt í klessu í vinnunni þennan daginn.... rafmagnið fór af þegar það var fólk inni í öllum bekkjum svo við þurftum að láta alla bekkina í gang aftur og þá varð auðvitað seinkun á öllum tímum sem eftir voru af deginum og allir alveg rosalega pirraðir eitthvað.... Alveg ótrúlegt hvað sumt fólk gerir í því að pirra sig yfir hlutum....... Það versta við þetta var samt að bekkirnir losnuðu svo allir á sama tímanum og vifturnar duttu auðvitað út þegar rafmagnið fór þannig að ég þurfti að þrífa 12 bekki á no time í 37stiga hita svo það lak af mér svitinn! ég var eins og hálfviti....

Svo ég fór bara beint heim í sturtu eftir vinnu...... Um kvöldið fór ég svo og hitti Heiðbrá og kítki aðeins í bæinn með henni og Röggu:haha: Þetta var alveg rosalega gaman þótt þetta hefði mátt enda aðeins betur:haha:

Ég vaknaði svo daginn eftir og fór í vinnuna..... og vann til klukkan var farin að ganga 11.... Þá kom Örn Steinar og náði í mig ogvið fórum heim, horfðum á video og pöntuðum pizzu og höfðum það cosy:haha: Svo var bara farið að sofa......:D

Daginn eftir vaknaði ég svo fyrir hádegi því mér var boðið í morgunverð heima hjá Kristjáni bróðir mömmu.... Þar voru Kristján, Hanna, Sigrún og Maggi kærastinn hennar, Védís, Vésteinn, Helga og Kristján kærastinn hennar, Guðrún, Grímur og Ronja María, Maggi bróðir mömmu, Vigdís, Maggi Óli, Helga Sigga og svo amma og afi á braut...:haha:(Ég held ég sé alveg örugglega ekki að gleyma neinum....)

Það var alveg ótrúlega gaman að hitta alla... ekkert smá langt síðan maður hefur hitt allt þetta lið og vona ég að við eigum eftir að hittast fljótlega aftur... Alltof lítill hittingur í þessari fjölskyldu... :haha:

Eftir þetta rölti ég svo heim, vakti Örn og svo þurfti ég að fara að vinna klukkan 16:00-22:30..... Ég var ein eitthvað að deginum en svo komu Ómar og Sigga sem eru eigendurnir og voru með mér til skiptis.....

Eftir vinnu kom Örn svo og náði í mig og við fórum heim....:haha: Þegar við vorum komin heim þá var Sandra mætt aftur í bæinn:haha: Svo var bara haft það cosy í smá og farið svo að sofa:D

Í dag var það svo bara skólinn.....dagurinn er búinn að vera alveg ótrúlega venjulegur nema það að í matartímanum labbaði einn gaurinn úr KF Nörd liðunu inn í skólann og gaf öllum miða á leikinn KF Nörd- FH:haha: Ég fékk fjóra miða og stelpurnar fengu líka einhvern slatta þannig að það verður sko fjölmennað á leikinn:haha:

En jæja... nenni enganveginn að hafa þetta lengra,

þannig....

Þangað til næst;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 09:05:39 / sara87

Fjör í borginni:)

Góðan daginn:haha:

Jæja þá er maður búinn að tengja sig við netið hérna í skólanum þannig að það ætti að vera hægt að henda inn nokkrum línum.....;)

Það er nú margt búið að gerast síðan seinast og þess vegna nenni ég alls ekki að fara að segja frá öllu..... En það sem stendur mest upp úr eru held ég barasta réttirnar..... Við fórum norður réttahelgina eftir að hafa skemmt okkur svaka vel á busaballi daginn áður. Örn, Mundi og Addi fóru allir með okkur Söndru á busaballið þótt sumir voru meira inni en aðrir;) Ég, Örn Steinar og Addi vöknuðum svo fyrir kl 9 morguninn eftir til að leggja af stað norður í réttir og tókum svo Ronju Maríu litlu frænku mína með norður.... Þegar við vorum komin norður skutlaði ég Erni upp í sveit á meðan við hin fórum á Blönduós og gerðum okkur til og brunuðum svo aftur upp í sveit og náðum í hann og fórum svo beinustu leið í vatnsdalinn..... Þetta var fínasti dagur.... fullt af fólki og svaka fjör :haha: Ég hefði nú samt alveg verið til í að sötra með krökkunum... en það er víst ekki alltaf hægt að gera það sem manni langar til:$

Þegar réttin var búin skutlaði ég svo Ronju heim til Röggu og Dabba og fór með Erni, Adda, Braga og Söndru í Öxl þar sem við vorum bara að spjalla og sötra restina af kvöldinu.... svo var bara farið heim að sofa:D

Daginn eftir voru svo réttir í minni sveit þannig að ég þurfti að vakna eldsnemma til að vera mætt upp í rétt klukkan 8. Þegar ég og pabbi vorum komin upp í rétt voru Erla og Hrefna mættar á svæðið á undan öllum eins og áður og byrjaðar að draga.....:haha: Það er alltaf svo fyndið hvað það koma margir til að draga fyrir afa... það styttist í að við verðum bara fleiri en kindurnar:D Eftir hádegismat kom svo maðurinn minn sem er svo duglegur að vakna og dró alveg eina kind:haha:

Jájájá..... alltaf skemmtilegar sveitasögurnar:P

En það sem stóð upp úr þessari helgi var réttaballið í Víðihlíð! Sjæse hvað þetta var gaman! Ég og Örn byrjuðum bara að sötra heima.... og svo var Sandra hans Braga svo góð að skutla okkur á ballið.... Þetta ball var endalaust skemmtilegt! Allir fullir og hressir:haha:

En nóg um það.......

Í morgun sváfum við sandra smá yfir okkur og gerðum okkur til í flýti og hentumst svo niður í skóla alveg lafmóðar.... Þegar ég kem svo inn í tíma, smá sein samt ekkert hrikalega segir kennarinn mér að það sé ekki tími hjá mér því í dag áttu þeir sem tóku ekki prófið sem var um daginn að fara í upptökupróf.....

Skólinn gegnur alveg ágætlega bara.... ég fór í munnlegt enskupróf um daginn sem er mín ömurlegasta grein... Tókum munnlegt próf úr bókinni the Catcher in the rye og viti menn, haldiði að ég hafi ekki bara náð þessu með 7,5!! Ég sem hélt ég væri drullu fallin..... Svo fékk ég 8 í félagsfræðiprófi og klúðraði svo einu stærðfræðiprófi:$

Svo er eg byrjuð að vinna með skólanum..... Ég er að vinna á ljósastofunni Smart á Grensásveginum og lýst bara ótrúlega vel á þetta......

Um helgina er svo æfingahelgi heima.... ég veit ekki enn hvort ég komist:$ Er að fara að vinna á eftir og þá kemur þetta allt saman í ljós:haha: Mig langar samt bilað mikið að komast heim og hreyfa mig ég er sko alls ekki búin að vera dugleg að hreyfa mig.... þarf að fara að kaupa mér kort í ræktina eða skella mér í fótboltann hérna... það hlýtur að vera hægt að fá að æfa með einhverju liði hérna....:P

Sambúðin hjá okkur Söndru gengur alveg rosa vel:haha: Húsið er búið að vera hálf tómlegt, en það er alltaf að bætast eitthvað meira og meira inn í það, þannig að þetta verður alltaf meira og meira cosy:D

 En núna nenni ég alls ekki að skrifa meira..... ætla að fara að gera eitthvað að viti:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 21:48:09 / sara87

Get ekki beðið eftir helginni:P

Halló halló8)

Jæja þá er önnur skólavikan byrjuð og ég get ekki alveg sagt það að heppnin sé með okkur Söndru hérna í borginni.....

Þannig var að við komum frá Blönduósi á sunnudagskvöldi og föttuðum þá að kortið hennar Söndru og síminn hennar urðu eftir í Öxl eftir að við skoppuðum rétt svo inn á leiðinni suður......Ekki nóg með það ´heldur er kortið mitt týnt og stundataflan mín varð eftir á Blönduósi þannig að ég vissi ekkert í hvaða tíma ég átti að fara á mánudagsmorguninn og var ekki með kortið mitt til að kaupa nýja stundaskrá......

En þetta var nú bara smá vesen..... þriðjudagsmorguninn var aðeins verri.... Hann byrjaði þannig að ég svaf yfir mig.... ekkert alvarlega neitt, hefði alveg náð skólanum.... ég þurfti bara að gera allt á met tíma.... En þegar ég var svo á leiðinni í skólann, stoppaði ég á rauðu ljósi og allt í einu neglir jeppi aftan á mig.... 8| Ég veit ekki alveg hvar þetta endar.... gáfaða ég var í smá sjokki, skalf bara eins og hálfviti en gat lítið sagt... sá bara að það sást eiginlega ekkert á bílnum þannig að kallinn lét mig bara hafa númerið sitt og við gerðum ekkert meira.... Eftir skóla ætlaði ég svo að ná í eitthvað í skottið og þá var það bara fast og svo þegar ég loksins náði að opna það var ekki hægt að loka því aftur.... þannig að greiið matthildur var eftir allt slösuð:$

En þetta reddast vonandi allt saman.....:$

Annars gengur bara allt vel....lýst alltaf jafn vel á skólann og svo erum við Sandra að fara að flytja inn á föstudaginn, semsagt ekki á morgun heldur hinn:haha: Svo koma mamma og pabbi, Kristófer og Örn Steinar um helgina þannig að þetta verður bara stuð:haha:

En núna nenni ég ekki að blogga meir þannig að hafiði það gott þangað til næst:haha:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 22:47:37 / sara87

Bloggletin að drepa mann....

Halló Halló:lol:

Fjúff hvað það er langt síðan ég bloggaði seinast:| Það er svo margt búið að gerast hjá mér að ég nenni bara alls ekki að fara að segja frá því öllu...

Núna er skólinn byrjaður og fyrir þá sem ekki vita, þá er ég kominn í fjölbrautaskólann við Ármúlann núna:haha: Ég byrjaði á mánudaginn seinasta og verð ég bara að segja að mér lýst bara helvíti vel á þetta allt saman8)

Ég er búin að búa hjá Guðrúnu frænku seinustu vikuna og ætla að búa hjá henni út næstu viku líka en um næstu helgi þá fáum við Sandra íbúðina okkar:haha: Ekkert smá cosy sko, erum búnar að skoða:haha:

Það á bara eftir að verða gaman þegar við erum fluttar inn8)

Núna um helgina er ég stödd heima á dósinni..... ég þurfti að fara heim því það var leikur hjá okkur í dag en annars hefði ég nú bara verið í borginni því Örn er einmitt þar núna og ég sé hann bara um helgar:$ Leikurinn var á móti Aftureldingu og töpuðum við 0-4..... ég get nú ekki sagt að ég hafi skemmt mér við að spila þennan leik þar sem´ég var bólgin rétt fyrir ofan hnéð fyrir leikinn og fékk svo hnéspark akkurat í bólguna og gat varla hlaupið og píndi mig áfram næstum allann leikinn, ekkert smá vont! Þannig að núna er ég með tvöfallt hné.....

Svo fer að styttast í réttir.... úff hvað þetta verður gaman! Ég missti nottla af þessu í fyrra þannig að það verður tekið tvöfallt á því í ár:haha: Maður verður að reyna að skella sér bæði í vatnsdals og auðkúlurétt og svo auðvitað á réttarball ef það verður eitthvað ball:haha:

En núna nenni ég alls ekki að hafa þetta lengra.... skal reyna að fara að verða duglegri við þetta þegar ég kem heim um helgar.... því ég hef ekkert net enþá í borginni:haha:

Hafiði það gott þangað til næst:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 23:29:08 / sara87

Húnavaka og fjör;)

Halló Halló:lol:

Jæja hvað segiði gott.... 8) Þar sem ég hef ekkert betra að gera fannst mer alveg tilvalið að koma með nokkrar línur....´

Þá er að koma að þessu.... fimmtudagur á morgun, sem þýðir það að Örn er  að koma í bæjinn a morgunn :D og líka það að helgin er bara alveg að skella á og ekkert venjuleg helgi heldur Húnavaka:haha: Það á eftir að vera brjálað stuð hérna í bænum...... Árbakkinn á föstudaginn, Stuðmenn á Laugardaginn og engin önnur en Sigríður Helga að koma í bæjinn! "Shit hvað er langt síðan ég hef séð þig sykurpúði:haha:"

Vááá hvað ég ætla að djamma af mér lappirnar, fótana eða hvað sem þetta kallast í dag.... (Erla ég ætla að giska á fóta) 8)

Loksins Loksins verð ég í fríi þegar þetta er haldið hérna .... hef barasta alltaf verið að vinna bæði þessa helgi og um verslunarmanna helgina! Alveg ömurlegt!!!

Annars er voða lítið búið að vera að gera hjá mér þessa dagana...... Aðalega bara vinna og fótbolti! Alltaf jafn mikið fjör í samkaup og ég get svo svarið það ég á eftir að koma gráhærð heim úr vinnunni einn daginn... ætli það verði ekki í næstu viku, býst við því:haha:

Á mánudaginn fórum við stelpurnar alla leið á Þorlákshöfn þar sem við spiluðum leik við Ægir sem unnu okkur seinast 9-1:$ Okkur gekk mun betur núna en í fyrri leiknum en okkur gekk samt frekar illa að nýta færin okkar:$ Við töðuðum aftur en núna 5-1 sem er mun betra, en samt alls ekki nógu gott! Margrét á samt bara hrós skilið þar sem hún varði víti:haha: Á heimleiðinni tókum við svo Johannes (eða mig minnir að hann heitir það) nýja danann í Hvöt, með frá Reykjavík og var hann svo góður að spila á gítar og syngja fyrir okkur (fulla rútu af stelpum) þetta var mjööög flott:haha: Svo var bara sofið restina af leiðinni:D

En í næstu viku kemur Ragga mín heim:haha: "vááá ég get bara ekki beðið!!!¨  Hún er núna búin að vera á Ítalíu frá því í ágúst í fyrra nema komið heim bara stutt og stutt inn á milli.... þ.e.a.s um jól og páska! Ég veit nú ekki alveg hvort hún sé spennt að koma heim í þennan kulda úr sólinni og fagnaðarlátunum þarna úti eftir að ítalarnir unnu heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu:haha: "En Ragga þú færð engu ráðið, þú skalt koma heim:haha:"

En jæja nenni alls ekki að hafa þetta lengra:haha:

Love you:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 22:55:14 / sara87

Anna farin :´(

Jæja kominn tími á smá blogg;)

Í dag er sorgardagur:cry: Seinasti dagurinn hennar Önnur Margrétar í samkaup og ég veit barasta ekki hvernig vinnan á eftir að verða þarna án hennar.... Nema ég er viss um eitt og það er það að það á eftir að verða TÓMLEGT:cry::$

Dagurinn í gær og dagurinn í dag þarna í búðinni eru búnir að vera hreinasta snilld:haha: Í gær var það einhver óður maður sem bjargaði deginum með að gera sér ferð í búðina til að reyna að næla sér í starfsmann.... Hahaha ég á aldrei eftir að hætta að hlægja af þessu!!

Við stelpurnar vorum bara í góðum fíling að vinna, allt voða rólegt og fínt þegar þessi maður röltir inn í búðina og byrjar strax með einhvern þvílíkan húmor.... ég er bara inni í eldhúsi eitthvað að bardúsa í grænmetinu þegar bjöllunni í kjötborðinu er dinglað og ég þurfti að fara fram að afgreiða..... Þegar ég kem fram er það þessi svona líka hressi maður sem gerði húmor úr öllu sem hann kom út úr sér og ég var alveg hætt að skilja hvað hann væri að meina með þessu öllu saman...... En allt í góðu með það ég afgreiddi manninn lét hann skvetta á sig smá blóði rétti honum svo tissjú til að þurrka sér og fór svo aftur inn í eldhús.....


Svo stuttu seinna þurfti eg að fara fram með nokkra nýskorna og fína kálhausa og er eitthvað að spjalla við Söndru Dís á leiðinni inn í eldhús aftur þegar maðurinn kemur aftur að mér og spyr hvað ég heiti.... ég segi honum það og spyr svo afhverju hann sé að spurja og þá sagðist honum bara hafa langað til að vita það, skrifaði nafnið mitt í símann sinn og labbaði burt....


Mér leið svona frekar skringilega eftir þetta en lét það nú ekkert stoppa mig og fór að hjálpa Önnu Margréti að reyna að koma súrmjólkurvögnum inn á mjólkurkæli.... En þegar við erum að baslast við að koma vagninum inn kemur gaurinn enn eina ferðina, hallar sér yfir kjötborðið og spyr..... Hvað gerið þið hérna á Blönduósi um helgar? Ég reyni að svara einhverju en´vissi lítið hvað ég ætti að segja.... og þegar ég er búin að koma einhverju útúr mér þá spyr hann.... mætti ég kannski fá að hitta þig einhverntíman?? Ég segi honum að ég sé með strák og þá segir hann "neiiii er sumarið ekki að verða búið? þarftu ekki að fara að endurnýja" og ég fór bara að hlægja og sagði nei og þá sagði hann "Jæja þá við sjáumst" og fór..... Shit hvað ég og Anna hlógum endalaust mikið af greyinu:haha:

Svo var það dagurinn í dag..... semsagt seinasti dagurinn hennar Önnu.... ohhh mig langar bara að fara að grenja þegar ég hugsa um þetta..... ekkert trall og enn minni hlátur og engin kaffikona til að halda Jóni og Þrúði vakandi við vinnuna sína..... hvað á ég að gera8|??? Anna þín verður skoh sárt saknað!!! :$ Hafðu það samt alveg rosalega gott í gömlu blokkinni minni á skaganum:D

En jáhhh við ákváðum að baka vöfflur í seinasta kaffinu hennar Önnur í yndislega kaffihorninu þarna niðri í samkaup! Við Anna skvettum í deig og mamma var svo góð að gera glassúr og koma með og svo var bara étið á sig gat.... bara ljúft:haha:

En þegar kaffið var búið og klukkan að verða hálf 6 þá fer rafmagnið af búðinni og ekki bara af búðinni, heldur bara af öllu Blönduósi þannig að fólkið varð bara að klára að versla í myrkrinu og svo þurftum við að henda þeim öllum út og loka búðinni.... Vááá þetta var svo magnað allir að fikra sig áfram í myrkrinu:haha:

En svo þegar allir voru komnir út kom rafmagnið aftur þannig að það var hægt að opna á ný:haha:

Annars er eitthvað lítið að frétta..... Fór á ættarmót um helgina í Borgarfirðinum! Þetta var bara eins STÓR SNILLD:haha: Það var svo endalaust gaman að hitta alla....Amma og afi voru auðvitað mætt á hótelbílnum sínum váááá hvað þetta er sjúklega flott tæki, svo voru Maggi og Vigdís, Hlega Sigga og Maggi Óli þarna í svaka flottu hjólhýsi, Guðrún, Grímur og Ronja María svo Sólveig Harpa og vinir hennar og svo voru Pétur og Selma mætt og fjölskyldan hans Péturs og Gígja og jáhh bara FULLT af fólki:haha: Þetta var yndisleg helgi¨!!! það er ótrúlega mikið af tónlistafólki þarna og þess vegna var mikið spilað og sungið bæði kvöldin plús það að frændur mínir héldu ball þar sem við misstum okkur smá í dansinum;) Þetta var semsagt alveg mögnuð helgi og væri ég sko alveg til í að gera þetta að ársviðburði:haha:

Annars var ég að koma heim af fótboltaleik núna rétt áðan Hvöt- Tindastóll sem endaði 1-1..... mínir menn voru nú miklu betri:haha:

Svo er það bara vinna á morgun og svo kemur Örn heim um helgina þannig að það á eftir að bralla eitthvað sniðugt!:haha:

En jæja ég nenni alls ekki að hafa þetta lengra..... :haha:

Hafiði það gott þangað til næst:P


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 22:11:41 / sara87

Ættarmót og gaman;)

Komiði sæl:lol: Jæja þá er ég mætt eina ferðina enn.... Ég nenni nú ekki að fara að skrifa hérna á hverjum degi en ég reyni að koma með nokkrar línur svona stundum og stundum...

En jámm það er semsagt allt gott að frétta af mér.... Alltaf á fullu í bakstrinum niðrí samkaup og mér hefur allavega ekki tekist að klúðra neinu alvarlega ennþá.....:haha:

Seinustu daga er ég búin að vera eins og skrímsli.... ég er ekkert að ýkja neitt ég er ÓGEÐSLEG!!! Þetta byrjaði allt á fimmtudaginn þegar ég vaknaði og gat ekki opnað vinsta augað fyrir grefti.... ég´hélt nú bara að þetta væri einhver smá síking þangað til ég vaknaði svo daginn eftir og fékk áfall! ég var bólgin og þrútin eins og eitthvað krumpudýr!! þetta var viðbjóðslegt

En þetta er samt eitthvað búið að skána þótt þetta sé nú ekkert fallegt ennþá....og þess vegna þarf ég að fara á Akureyri um morguninn á morgun til augnlæknis og ætla svo að fara í klippingu strax á eftir....:haha: Úff hvað það á eftir að verða nice að fara í klippingu, hárið á mér er viðbjóðslegt:haha:

Á morgun er svo líka fyrsti heimaleikurinn okkar og þá á hún Snædís mín líka afmæli:haha:.... Hann er á móti aftureldingu og verð ég að viðurkenna það að ég er með í maganum af stressi eins og fyrir hvern leik:$ En svona er ég bara...

Annars veit eg lítið hvað ég get sagt ykkur... styttist óðum í Röggu... og það á auðvitað bara eftir að verða gaman að fá hana heim!

Um helgina er ég svo að fara á ættarmótið sem ég er búin að vera að bíða eftir í nokkra mánuði! Þetta á bara eftir að verða snilld:haha: En nenni ekki að hafa þetta lengra:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14